Bio Marine Exfoliant

FÍNKORNA HREINSIKREM.  MINNKAR SVITAHOLUR, HREINSAR HÚÐINA OG GEFUR HENNI BJARTARA YFIRLIT.

Djúpvirk hreinsimeðferð með kísilþörungum.  Hreinsar burt óhreinindi og gefur húðinni mýkri, bjartari og fallegri áferð.  Tilvalinn undirbúningur fyrir vörurnar sem innihalda hin virku sjávarensím eins og t.d. Age Management Moisturiser, Super Facial Serum eða Intensive Treatment Mask. 

Kísilþörungar fjarlægja dauðar frumur af yfirborði húðarinnar og vinna á erfiðum svæðum þar sem gjarnan verður óæskileg fitumyndun.  Kísilþörungarnir auka myndun kollagens og næra ystu lög húðarinnar með æskilegum skammti af steinefnum. Ákaflega einföld og kröftug djúpvirk hreinsun sem ber mikinn árangur.  Endurvekur útgeislun húðarinnar.

NOTKUN

Bleytið andlitið með volgu vatni.  Setjið lítið magn í lófann, dreifið yfir andlitið og nuddið varlega með fingurgómunum.  Skolið af með volgu vatni. Varist að bera fínkorna hreinsirinn nálægt augnsvæðinu.

98% náttúruleg innihaldsefni eru í kornahreinsinum og því hentar hann öllum húðtegundum einnig þeim viðkvæmari.

INNIHALDSEFNI

Hamamelis Virginiana (Witch Hazel) Leaf Water, Cetearyl Alcohol, Dicaprylyl Carbonate, Hydrated Silica, Glyceryl Stearate, Cetearyl Glucoside, Maris Aqua (Sea Water), Sclerotium Gum, Benzyl Alcohol, Dehydroacetic Acid, Aqua (Water), Citrus Aurantifolia Oil (Lime Oil), Citric Acid, Tocopherol, Glycine Soja (Soybean) Oil og Limonene úr náttúrlegum olíum.