Ofurvirkni úr djúpi hafsins
DrBRAGI eru byltingarkenndar húðvörur sem innihalda ofurvirk sjávarensím úr Norður Atlantshafi við Íslandsstrendur. Þar sem eðlileg virkni þeirra er við -2° Celcius, verða þau ofurvirk og mun öflugri en önnur ensím þegar þau komast í snertingu við líkamshita.
Sannkölluð ofurvirkni í hverjum dropa sem örvar náttúrulegt endurnýjunarferli og kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar.
ÍSLENSKT HUGVIT OG FRAMLEIÐSLA
Fjölbreytilegt lífríki sjávar í kringum Ísland varð hvatinn að vísindalegum rannsóknum Dr. Jóns Braga Bjarnasonar heitins á lækningarmætti sjávarensíma. Dr. Jón Bragi var meðal fremstu lífefnafræðinga í heimi sem helgaði ævistarf sitt rannsóknum og prófunum á sjávarensímum og lækningarmætti þeirra.
DrBRAGI húðvörurnar sem innihalda sjávarensím eru framleiddar á Íslandi og innihalda engin óþarfa aukaefni eða önnur skaðleg efni eins og rotvarnarefni, paraben, ilmefni, silíkons, glýkóls, fituefna (lípiða) eða lanólín.
FANGAÐU NÁTTÚRULEGA FEGURÐ
Sjávarensímin okkar örva náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar sem gerir það að verkum að fínar línur minnka, kollagen framleiðsla húðarinnar eykst og húðin verður þar af leiðandi stinnari, unglegri og fær mun heilbrigðari yfirbragð.
Vörur DrBRAGA innihalda eingöngu örfá vel valin innihaldsefni sem öll hafa jákvæð og góð áhrif á húðina. Slíkt lágmarkar líkur á ofnæmisviðbrögðum við notkun og henta því húðvörurnar sérstaklega þeim sem eru með viðkvæma húð. Vörurnar hámarka starfsemi húðfrumna og með reglulegri notkun hjálpa þær húðinni að verða eins heilbrigð og falleg og mögulegt er.
HÚÐVÖRUR SEM BYGGJA Á VÍSINDUM
Húðvörurnar frá DrBRAGA eru byggðar á rannsóknarvinnu Dr. Jóns Braga Bjarnasonar en hann var meðal fremstu lífefnafræðinga í heimi sem helgaði ævistarf sitt rannsóknum og prófunum á sjávarensímum og lækningarmætti þeirra. Hans sýn, ásamt undraverðum niðurstöðum úr rannsóknum, varð hvatinn að því að nýta þennan einstaka lækningarmátt sjávarensíma í húðvörur. Niðurstöður rannsókna hans urðu til þess að húðvörulínan DrBRAGI varð til og er hún sú fyrsta á markað til að innihalda þessi ofurvirku sjávarensím.